Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Afar góð áminning

Pétur Gunnarsson minnir réttilega á söguna í ljósi nýjustu ,,fréttar" Vinstri-Grænna um að ráðherrar ættu ekki að hafa vald rétt fyrir kosningar.   Legg til að allir rifji upp þessa sagnfræðilegu staðreyndir:

 http://hux.blog.is/blog/hux/entry/205287/


Reykjavík vaknar!

Loksins eru í boði fjölbreyttar lóðir á ólíkum svæðum í borginni.   Borgarstjórnarflokkurinn kynnti áðan tímasetta áætlun og fast verð á nýbyggingarlóðum borgarinnar fram í tímann.   Vefur sem sýnir öll svæðin og skipulagið á þægilegan hátt er kominn í gagnið og svínvirkar.   Hægt er að sjá hvenær hvaða lóðir verða úthlutaðar og fyrstu lóðirnar verða tilbúnar til úthlutunar núna í maí.  Fljótlega verður hægt að skoða svipaðan vef á sama stað fyrir atvinnuhúsalóðir.

Reykjavík vaknar í dag af værum og löngum svefni í þessu samhengi því fyrrverandi meirihluti í borginni vanrækti þetta mikilvæga hlutverk borgaryfirvalda svo árum skipti.   Ég hlakka til að heyra hvað fólki finnst um þetta útspil okkar í borgarstjórn, ég er a.m.k. afar stolt af þessu og Hanna Birna Kristjánsdóttir og Óskar Bergsson fá sérstakt hrós frá mér fyrir mikla og góða vinnu og undirbúning.

Hanna Birna Kristjánsdóttir formaður skipulagsráðs segir að til úthlutunar á næstu árum verði að minnsta kosti 1000 íbúðir í nýbyggingarhverfum, u.þ.b. 500 nýjar íbúðir í miðborginni og nágrenni og að úthlutað verði þrisvar á ári eða í maí, september og desember. Það verður því nægt framboð lóða í Reykjavík enda í samræmi við málefnasamning Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í borginni.

Borgarstjóri sagði á fundinum í dag að nú verði nýjar úthlutunarreglur viðhafðar í Reykjavík. Hver einstaklingur getur sótt um eina lóð. Eftir að farið hefur verið yfir allar umsóknir verður dregið úr þeim umsóknum sem uppfylla öll skilyrði.  Þannig ræðst í fyrsta lagi hverjir fá lóðir og í öðru lagi í hvaða röð umsækjendur fá að velja sér lóð.  Fast verð er á lóðum í nýju reglunum, 11 milljónir fyrir einbýlishús, 7.5 milljónir fyrir parhús og raðhús og 4.5 milljónir fyrir fjölbýlishús.

Hér er hægt að skoða kortið á vefnum sem sýnir lóðaskipulagið í Reykjavík til næstu ára.

Kort af Reykjavík, lóðir


mbl.is Fjöldi nýrra íbúða í boði á næstu árum í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leikskólamál ekki skólamál hjá Samfylkingunni?

Það er áhugavert að bera saman ályktanir stjórnmálaflokka núna í baráttunni.   Ég staldra eðlilega við þær ályktanir sem tengjast skólamálum og þá sérstaklega hvað varðar leikskólamál.   Ályktun Sjálfstæðisflokksins í skóla- og fræðslumálum er ítarleg og vel unninn enda mikil vinna í nefndum og á landsfundi að baki.  Í henni er sérstaklega fjallað um hvert skólastig fyrir sig og kaflinn um leikskólastigið er eftirfarandi:

,,Leikskólaaldurinn er afar mikilvægt mótunarskeið og ber að efla leikskólann sem fyrsta skólastig. Umhyggja, alúð og þroskandi starf á þessum árum er fjárfesting sem skilar sér margfalt síðar á lífsleiðinni. Leikurinn er lífstjáning barnsins og mikilvægasta náms- og þroskaleið þess. Landsfundur hvetur til að sérstök áhersla verði lögð á að efla leikskólastigið í samvinnu við foreldra og kennara, stofnanir og atvinnulífið. Mikilvægt er að leita leiða til að fjölga fagmenntuðu fólki í leikskólum landsins. Nám í leikskóla er skapandi og tryggja þarf áfram sterk tengsl við verk- og listgreinar. Forðast þarf að sama skapi að rammar um leikskólastarf og kjör kennara þrengist, svo að hið lifandi og sveigjanlega starf leikskólans fái áfram að blómstra. Á þessum árum er mikilvægt að til staðar sé gott sérfræði- og greiningarstarf með áherslu á sértækar úrlausnir. Í samræmi við grundvallarreglu að fé fylgi barni áréttar landsfundur að engu skipti hvort sá styrkur fari til opinberra aðila, einkaaðila eða til heimilisins sjálfs. "

Þessu til viðbótar er margt lagt til sem tengist fleiru en einu skólastig eins og t.d. ,,Stefna ber að því að fella ákvæði um hámarkslaun úr gildi hjá leik- og grunnskólakennurum líkt og hjá framhaldsskólakennurum."

Ályktun Samfylkingarinnar er mun styttri og meira í númeruðum loforðastíl.  Það sem stingur helst í stúf er að ekkert er rætt um leikskólastigið sérstaklega þrátt fyrir að Samfylkingin sé óþreytandi að berja sér á brjóst í þessum málaflokki.  Aðeins á einum stað er leikskólinn nefndur sérstaklega.

,,Stuðla að því að öllum standi til boða gjaldfrjáls menntun frá og með leikskóla til og með háskóla."

Að mínu mati er gæðamunurinn á grunnvinnu þessara ályktana verulegur.  Allir flokkar bera eflaust metnað til allra skólastiga jafnt en það er ótrúlegt að ekki sé minnst á skólamál á ígrundaðri hátt.

 


Umbætur og þjónustuaukning í leiðakerfi Strætó.

Sem fulltrúi Reykjavíkur í stjórn Strætó BS. og borgarfulltrúi í umhverfisráði tók ég við mjög krefjandi verkefni er varðar almenningssamgöngur.   Mitt allra fyrsta verkefni var að skera niður kostnað þar sem félagið tapaði 1 milljón á dag.  Það gekk augljóslega ekki þrautalaust fyrir sig enda voru talningar og önnur upplýsingatækni um nýtingu vagna og leiða ekki til staðar.  Í kjölfarið var kallað eftir stjórnsýslu- og rekstrarlegri úttekt á félaginu sem staðfesti gagnrýnisraddir Sjálfstæðismanna undanfarin ár í borgarstjórn um rekstur og stjórnun félagsins.   Í kjölfarið var strax farið í að breyta kostnaðarskiptireglu félagsins þannig að Reykjavík gæti breytt leiðakerfi innan borgarmarka án þess að þurfa að deila um það við nágrannasveitarfélög sem tóku áðar þátt í kostnaði breytinga.  Breytingar urðu í kjölfarið á framkvæmdastjórn og nýlega var ráðinn nýr framkvæmdastjóri, Reynir Jónsson, sem hóf störf sl. föstudag. 

Endurskoðun leiðakerfis á sér stað á hverju ári og breytingar eru nú að fara í kynningu hjá vagnstjórum.   Í gær var umhverfisráði sýndar breytingar sem byggja nú í fyrsta skipti á mjög nákvæmum talningum sem gáfu skýra mynd af því hvaða stöðvar voru öflugastar í kerfinu og hvernig notendur eru að nota einstakar leiðir.  Kynntar voru þjónustubreytingar sem allar eru jákvæðar að mati hverfaráða enda eru þær unnar með það í huga að hverfin sjálf njóti góðs af (leiðir innan hverfis bættar og tengingar við fleiri leiðir úr hverfinu líka).  Til dæmis fær nú Breiðholtið aukna þjónustu, Grafarvogur hverfisstrætisvagna sem kallað hefur verið eftir lengi og Grafarholtið langþráðar tengingar við Grafarvog og íbúðir námsmanna í hverfinu.

Það var að mínu mati stórundarlegt að hlusta á minnihlutann í umhverfisráði kvarta yfir ónógu samráði.   Aldrei fyrr hafa leiðakerfisbreytingar verið kynntar í umhverfisráði áður og aldrei fyrr hefur samband verið haft við hverfaráð vegna svona leiðabreytinga.   Heildarendurskoðun og bylting leiðakerfisins sem er enn umdeild var kynnt fyrir íbúum á fundum en leiðakerfisbreytingar eins og nú hafa aldrei verið kynntar fyrr en nú.   Það er líka undarlegt að hlusta á minnihlutann sem er ábyrgur fyrir gríðarlega slæmri fjárhagsstöðu félagsins kvarta yfir því að sumartíðni verði á annarri tíðni en vetrartíðni.   Það er nú svo að notkun á strætó minnkar um 45% á sumrin og það er í raun afar óeðlilegt að keyra tóma vagna bara af því að!

Að mínu mati er helsti munurinn á nýjum meirihluta og þeim eldri að nýr meirihluti vinnur með upplýsingar og staðreyndir þegar ákvarðanir eru teknar.   Upplýsingar og tölfræði eru grundvöllur þess að almenningssamgöngur þjóni íbúum sem best og í framtíðinni verður lagt upp úr því að nýta enn meira af upplýsingum til að bæta þjónustuna enn frekar.  Þessu til viðbótar finnst mér mikilvægt að starfsmenn Strætó, og þá sérstaklega vagnsstjórar, geti átt aukinn þátt í að móta félagið og þjónustu þess.   Vagnstjórar þurfa að geta veitt upplýsingum um leiðakerfi og ánægju eða óánægju notenda til þróun leiðakerfis og almenningssamgangna í heild.

Á vettvangi Reykjavíkurborgar erum við búin að kynna metnaðarfullar tillögur vegna aðgerðaráætlunar um 10 Græn skref.   Í henni er sérstaklega tekið á málefnum Strætó og nú þegar er búið að gera nýjar tímatöflur, unnið er að því að allar biðstöðvar fái nafn og tilraun um að gefa námsmönnum frítt í Strætó hefst næsta haust.


mbl.is Deilt um fyrirhugaðar breytingar á leiðakerfi Strætó bs.
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við krotum bara á það sem enginn á

Ég er mjög hugsi yfir þessum skemmdarvörgum sem ganga um borgina krotandi, brjótandi rúður og stelandi úr skólum og opinberum byggingum.   Í hverfaráði Háaleitis höfum við rætt mjög mikið um veggjakrot og hegðun sem þessa en hún virðist vera sérstaklega áberandi í Háaleiti og Laugardalshverfi.   Við höfum fengið til okkar hverfalögregluþjón og verkefnastjóra veggjakrotsmála hjá Framkvæmdasviði Reykjavíkurborgar.  Þau hafa skýrt út fyrir okkur hvernig á málum er haldið og viðbrögðum ungmenna sem eru staðnir að verki.  

Ungmennin segja hvað varðar veggjakrotið að þau ,,kroti bara á það sem enginn á".  Hverfislögregluþjónninn sagði þetta einstaklega súrt að heyra því þau virðist ekki skynja að það sem enginn á eigi allir.   Þetta eru kannski skilaboð um að við sem samfélag séum ekki að minna börn og foreldra á að þessar samfélagslegu eigur eins og skólar, ljósastaurar, rafmagnskassar og grindverk séu greiddar úr vasa íbúa borgarinnar.   Það sem enginn á eiga allir, líka foreldrar þessara barna.


mbl.is Innbrot í austurborginni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Græn skref í Reykjavík


Í borgarstjórn í dag voru skemmtilegar umræður um 10 græn skref sem nýr meirihluti í Reykjavík lagði fram og kynnti í síðustu viku. Gísli Marteinn Baldursson formaður umhverfisráðs fór yfir skrefin og markmiðin með hverju og einu. Meðal annars stendur fyrir dyrum að gera tilraun um að gefa námsmönnum ókeypis í strætó og bæta og breikka hjólastíga. Í skólum á að styrkja endurvinnsluúrræði og bæta innkauparamma til að bæta aðgengi skólanna að lífrænt ræktuðum mat. Ég hlakka til að taka við þeim verkefnum í skrefunum sem snúa að mínu verksviði, þ.e. Strætó bs. og Leikskólasviði.


Í umhverfisráði er ungur hópur stjórnmálamanna sem eru sammála um að vera ekki að taka pólitíska slagi um góð mál sem þessi. Ég fagna þessu viðhorfi í umhverfisráði enda er gaman að vera fulltrúi í því ráði. Formaðurinn hefur verið sérlega góður í því að hrósa því sem vel hefur verið gert á síðasta kjörtímabili og minnihlutinn hefur hrósað nýjum meirihluta og tekið þátt í góðum verkum. Við erum sammála um flest mál en líka sammála um að vera ósammála. Skotgrafarhernaðurinn er sýnilega minni en í öðrum ráðum. Kannski er þetta fyrirboði breytinga í stjórnmálum sem sýnir önnur vinnubrögð nýrrar kynslóðar. Auðvitað verður áfram tekist á um álitamál enda eðlilegt. Það er hins vegar mikill munur varðandi framgang góðra mála þegar fulltrúar eru sammála. Grænu skrefin hafa fengið afar jákvæðar viðtökur og það er án efa að hluta til vegna samstöðu í umhverfisráði.

Konur leynivopn þjóða?

Það eru alltaf fleiri og fleiri að átta sig á mikilvægi þess að konur hafi jöfn tækifæri og karlar. Það hefur alltaf verið mín skoðun að efnahagslífið hefur vanmetið konur og kraft þeirra og þekkingu sem þær koma með inn í fyrirtæki og rekstur. Þau fyrirtæki sem skilja mikilvægi þess að konur og karlar stýri fyrirtækjum og ákvörðunum hefur vegnað mjög vel.

Nú hefur Goldman Sachs metið að ef jöfnuð er atvinnuþátttaka karla og kvenna gæti það aukið landsframleiðslu um 9% í Bandaríkjunum, í Evrópu um 13% Kog í Japan 16%. Það væri gaman að rýna betur í hvernig þessi greining er framkvæmd en ég efast um að ávinningur fyrirtækja af sjónarmiðum og skoðunum kvenna sé ekki einu sinni talinn með.

April 13 2007 12:49

In the struggle to cope with ageing populations and heavier pension liabilities, governments, though they may not realise it, have a secret weapon ? women. Goldman Sachs estimates that closing the gap between male and female employment would boost US gross domestic product by as much as 9 per cent, eurozone GDP by 13 per cent and Japanese GDP by 16 per cent.
Increasing female employment accounts for 0.4 percentage points of the eurozone?s 2.1 per cent trend growth since 1995, and Goldman projects a further 0.25 percentage point lift over the next 10 years. But rising female employment is not inexorable. The relatively high level in the US has slipped and Japan?s low rate remains stubbornly flat ? so no economic fillip for them.

Copyright The Financial Times Limited 2007

Meira um strætó af vef umhverfisráðs

Unga fólkið fari oftar í strætó!

?Meginlína nýs meirihluta í Reykjavík er að styrkja þurfi almenningssamgöngur og að þjónusta sem veitt er og það viðmót sem notendur fá: skipti mestu. Stefnan er að minnka flækjustig sem skapast með ólíkum gjaldflokkum,? segir Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. ?Almenningssamgöngur eiga að vera ódýrar, einfaldar og fljótlegar. Til að svo verði þarf að koma í veg fyrir frekari gjaldskrárhækkanir,? segir Sóley Tómasdóttir varaborgarfulltrúi Vinstri grænna. Gjaldskrár breytingar Strætó bs hafa verið í deiglunni í vikunni.

Allir eru sammála um að æskilegt er að almenningssamgöngur gegni mikilvægu hlutverki í borgum. Öflugar almenningssamgöngur draga m.a. úr loftmengun og umferðartöfum og stuðla að því að borgarlandið nýtist betur undir annað en samgöngur.

Ný gjaldskrá tók gildi hjá Strætó núna í vikunni. ?Í flestum tilvikum er um hækkun fargjalda að ræða, en einstaka verðflokkar lækka eða standa í stað. Fargjaldahækkunin nemur að jafnaði tæpum 10%. Minnst er hækkunin hjá öldruðum og öryrkjum, eða 6,7%,? segir í frétt frá Strætó bs (www.bus.is). Fjargjald fullorðinna verður 280 krónur en staðgreiðslufargjald 6 til 18 ára verður 100 krónur. Farið í fargjaldskorti 6-11 ára verður áfram 37,50 krónur. Auk þessa bjóðast ýmis afsláttarkjör.

Bókanir í umhverfisráði um strætó
Gjaldskrárbreytingarnar komu til umræðu á síðasta fundi umhverfisráðs og gerðu bæði minnihluti og meirihluti bókanir: Fulltrúar Samfylkingar, Vinstri grænna og Frjálslyndra sögðu hækkanir á fargjöldum Strætó ganga í berhögg við stefnu Reykjavíkurborgar um að efla almenningssamgöngur í því augnamiðið að bæta umhverfi, heilsu og borgarbrag. Í bókun þeirra stendur að þessar hækkanir bitni á þeim sem síst skyldi: fólki sem velur umhverfisvænan samgöngumáta.

Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks sögðu aftur á móti í bókun að tilkoma staðgreiðslufargjalds barna og ungmenn hefði vonandi þau áhrif að ungmenni nýttu sér almenningssamgöngur betur og kynntust nýju og breyttu leiðakerfi. Meirihlutinn nefndi einnig í bókun sinni gildi þjónustu og viðmóts notenda vagna og skýrt markmið sitt í að bæta þjónustu strætó með öllum mögulegum aðgerðum.

Út frá þörfum Reykvíkinga
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í umhverfisráði Reykjavíkur og stjórnarmaður í stjórn Strætó bs leggur áherslu á lækkanir í strætó handa ungu fólki og bendir á að gjaldskrárbreytingin endurspegli hækkanir og spár um hækkanir á verðlagi og olíugjaldi.?Í undirbúningi hjá Strætó bs. og umhverfisráði borgarinnar er tilraun um að gefa frítt í strætó fyrir tiltekna hópa,? segir Þorbjörg hér á heimasíðu Umhverfissviðs. ?Þessi tilraun mun mæla hvort að gjaldið í vagnana sé í raun hindrun í sjálfu sér, einnig verður spennandi að sjá hvernig niðurstöðurnar verða.? Hún segir að kannanir erlendis sýni að greiðsla gjalds sé ekki hindrun enda sé alltaf mjög skýr ávinningur fyrir fólk að nota almenningssamgöngur. ?Til dæmis kostar 9 mánaða Strætókort jafnmikið og rekstur bíls í einn mánuð, ? segir hún. Þorbjörg segir stefnuna vera að minnka markvisst það flækjustig sem skapist með ólíkum gjaldflokkum. ?Með því að setja eitt skýrt gjald fyrir börn er mun auðveldara að kynna fargjaldið í samhengi við einfaldleikann við að nota vagninn. Nýtt leiðakerfi hefur vafist fyrir mörgum og við teljum mikilvægt að kynna yngstu notendunum, framtíðarnotendum Strætó, fyrir kerfinu og kostum þess að nota vagninn til að komast á milli borgarhluta eða sveitarfélaga,? segir hún og að markmiðið sé að athygli foreldra á því að börnin geti á auðveldan hátt notað leiðakerfi Strætó til að komast í frístundir, til afa og ömmu eða til vina. Hún segir næsta skref stjórnar Strætó bs. að einfalda staðgreiðslufargjöld fyrir fullorðna en núverandi notendur Strætó nýta sér mjög mikið afsláttarkort nú þegar sem léttir á pyngjunni.

?Meginlína nýs meirihluta í Reykjavík er að almenningssamgöngur þurfi að styrkja og að í því samhengi skipti mest sú þjónusta sem veitt er og það viðmót sem notendur fá. Þjónusta á að mótast út frá þörfum Reykvíkinga fyrst og fremst og vagnarnir eiga að vera raunverulegur valkostur við aðra samgöngukosti,? segir hún.

Þau borga sem menga
Sóley Tómasdóttir fulltrúi Vinstri grænna í umhverfisráði segist vera ánægð með að gjaldskrá Strætó hafi verið einfölduð og að gjald ungmenna hafi verið lækkað. ?Hækkanir á gjaldskrá fyrir börn (12-18) og fullorðna finnst mér aftur á móti óréttlætanlegar að svo stöddu,? segir hún. Strætó er umhverfisvænn samgöngumáti að hennar mati og á því að vera ódýr. ?Hugmyndafræði gjaldheimtu á að byggja á því að þau borgi sem mengi.? Sóley telur brýnt að styrkja almenningssamgangnakerfið í Reykjavík. Almenningssamgöngur eiga að vera ódýrar, einfaldar og fljótlegar. ?Til að svo verði þarf að koma í veg fyrir frekari gjaldskrárhækkanir, fjölga forgangsakreinum og þétta ferðir strætisvagnanna. Umhverfisvæn borgaryfirvöld eiga að styðja myndarlega við almenningssamgöngur og tryggja að raunverulegir valkostir séu til staðar fyrir borgarbúa,? segir hún.

Heilnæmt hlutverk
Pálmi Freyr Randversson sérfræðingur í samgöngumálum hjá Umhverfissviði segir að auka eigi hlutdeild almenningssamgangna úr 4%-8% á næstu 20 árum. Hann segir að meðal annars þurfi að bæta lykilstoppistöðvar vagna þannig að þær verði skjólgóðar og vistlegar. ?Strætó skal njóta forgangs í umferðinni og í því tilliti er unnin áætlun um forgangsbrautir, ? segir hann.
Sóknarfæri strætó eru mikil, að mati Pálma og að sennilega þurfi hugarfarsbreytingu gagnvart almenningssamgöngum í Reykjavík. ?Einnig eru hjólreiðar og almenningssamgöngur tilvaldir kostir saman ? þar sem auðvelt væri að taka hjólið með í strætó eða skilja það eftir við stoppistöðina,? segir hann. Almenningssamgöngur í huga Pálma eiga að vera notaðar sem verkfæri til að stuðla að heilnæmu umhverfi í borginni, bættri heilsu borgarbúa og aðlaðandi borgarbrag.

Danir

Það var erfitt að yfirgefa Þýskaland á mánudaginn vitandi að íslenska liðið væri að mæta Dönum daginn eftir. Vinnan kallaði og ég hafði stutt Óla frænda vel tvo leiki. Fjölskyldan safnaðist síðan saman heima og hvatti liðið áfram í gegnum sjónvarpstækið með miklum hávaða og látum. Þvílíkur leikur! Ég er enn mjög pirruð á þessum úrslitum, þetta var bara heppni hjá Dönunum.

Borgarráð samþykkti að styrkja landsliðið um 1.000.000 kr. í dag. Frábært framtak hjá borgarstjóra. Áfram Ísland!

Börn í fararbroddi í Reykjavík (Mbl. 08.01.07)

Í öllum áætlunum nýs meirihluta í borginni er stefnt að því að bæta hag fjölskyldna og barna í borginni. Börn sem njóta þjónustu dagforeldra fá nú 1. janúar auknar niðurgreiðslur frá borginni, annars vegar til þess að lækka álögur á foreldra sem einsýnt var að myndu hækka að óbreyttu á nýju ári og hins vegar til að tryggja þjónustu dagforeldra sem er lykilþáttur í lífi og starfi barnafjölskyldna. Greiðslur með börnum námsmanna og einstæðra foreldra hækka mikið. Dagforeldrakerfið er afar farsælt og mikilvægt og á áfram að vera skýr valkostur fyrir foreldra með ung börn. Því þarf að styrkja þennan valkost á sambærilegan máta og aðra valkosti sem foreldrar geta valið á milli. Það þarf að tryggja þjónustuna og gjöld foreldra þurfa að vera sambærileg á milli ólíkra valkosta dagvistunar. Nýr meirihluti mun áfram leita leiða til þess að tryggja valkosti fyrir foreldra yngstu barnanna í Reykjavík.

Samfylkingin gleymir skjótt
Samfylkingin í borgarstjórn er fljót að gleyma eins og sést á grein Oddnýjar Sturludóttir í Morgunblaðinu sl. mánudag. Hún er sérstaklega fljót að gleyma þeirri þróun sem átti sér stað og endurspeglaðist í því ástandi sem hér ríkti í dagvistarmálum ungra barna í borginni síðastliðin ár, en dagforeldrum hefur fækkað um 40% frá árinu 2000. Í verstu tilfellunum þurftu foreldrar að hætta í starfi eða taka launalaust leyfi til að sinna börnum sínum vegna smánarlegs framlags borgarinnar til dagforeldrakerfisins. Kerfið er afar gott enda eru yfir 90% foreldra mjög ánægðir með þjónustu dagforeldra. Samfylkingin er líka búin að gleyma því að fyrir réttu ári samþykkti hún, í samstarfi við Framsóknarflokkinn og Vinstrihreyfinguna grænt framboð, skilyrðislaust rúmlega 30% aukningu til dagforeldra. Í málefnaáherslum Samfylkingarinnar fyrir síðustu kosningar komu heldur ekki fram neinar hugmyndir að breyttri þjónustu dagforeldra eða stofnanavæðingu þeirra. Hækkun fyrrverandi meirihluta var án allra skilyrða af hendi borgarinnar, nákvæmlega eins og Samfylkingin gagnrýnir núverandi meirihluta fyrir. Það er greinilega þægilegt að vera í minnihluta og leyfa sér að kannast ekki við eigin fortíð. Samt var um að ræða sögulega hækkun, því árið 2005 var ástandið orðið þannig að börn hjóna fengu niðurgreiðslu frá borginni að upphæð einungis kr. 13.000 á mánuði fyrir 8 tíma vistun! Eftir aukningu borgarstjórnar til málaflokksins nú 1. janúar 2007 fá hjón 32.000 kr. fyrir 8 tíma vistun og einstæðir foreldrar tæp 50.000 kr. fyrir 8 tíma vistun. Of snemmt er að meta hvernig þessi aukning skiptist á milli foreldra og dagforeldra en þar sem dagforeldrar eru sjálfstætt starfandi er þeim óheimilt með lögum að samræma gjaldskrá sína. Þó er ljóst að foreldrar eru ekki að fá hækkun á gjöldum hjá dagforeldrum og félag dagforeldra hefur gefið skýr tilmæli til dagforeldra að lækka gjöld á foreldra að einhverju marki.

Leikskólagjöldin í Reykjavík lægst allra
Í dag eru foreldrar í Reykjavík að greiða lægstu gjöldin á landinu og langlægstu gjöldin greiða foreldar sem eru með fleiri en eitt barn í leikskóla. Sérstaklega hefur verið komið til móts við einstæða foreldra og barnmargar fjölskyldur. Sem dæmi má nefna að foreldrar með tvö börn í leikskóla greiða nú rúmlega 20.000 kr. lægri upphæð á mánuði eða sem nemur 220.000 kr. á ársgrundvelli í leikskólagjöld, þrátt fyrir verðlagsbreytingar. Þetta hefur allt gerst á 6 mánuðum og áfram mun nýr meirihluti framkvæma gefin loforð og gott betur.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband