Við krotum bara á það sem enginn á

Ég er mjög hugsi yfir þessum skemmdarvörgum sem ganga um borgina krotandi, brjótandi rúður og stelandi úr skólum og opinberum byggingum.   Í hverfaráði Háaleitis höfum við rætt mjög mikið um veggjakrot og hegðun sem þessa en hún virðist vera sérstaklega áberandi í Háaleiti og Laugardalshverfi.   Við höfum fengið til okkar hverfalögregluþjón og verkefnastjóra veggjakrotsmála hjá Framkvæmdasviði Reykjavíkurborgar.  Þau hafa skýrt út fyrir okkur hvernig á málum er haldið og viðbrögðum ungmenna sem eru staðnir að verki.  

Ungmennin segja hvað varðar veggjakrotið að þau ,,kroti bara á það sem enginn á".  Hverfislögregluþjónninn sagði þetta einstaklega súrt að heyra því þau virðist ekki skynja að það sem enginn á eigi allir.   Þetta eru kannski skilaboð um að við sem samfélag séum ekki að minna börn og foreldra á að þessar samfélagslegu eigur eins og skólar, ljósastaurar, rafmagnskassar og grindverk séu greiddar úr vasa íbúa borgarinnar.   Það sem enginn á eiga allir, líka foreldrar þessara barna.


mbl.is Innbrot í austurborginni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Hulda

Sæl Þorbjörg. Greip tvo um daginn í Hlíðunum og þeir sögðu það sama.....voru reyndar yfir sig hneykslaðir á afskiptaseminni og sögðust alveg mega krota á ljósastaura og svona dót úti á götu.

Þarf ekki að ræða þetta inn í grunnskólunum - greinilega er ekki rætt um þetta heima hjá kroturunum..

Guðrún Hulda, 23.4.2007 kl. 11:01

2 Smámynd: B Ewing

Það er kominn tími til stórátaks gegn veggjakroti.  Eitt sem ég hef klengi furðað mig á er hvar þessir krakkar (í flestum tilfellum er jú um börn að ræða) fá efnið og áhöldin, þ.e. þessa breiðu tússpenna og alla spreybrúsana.

Þar tel ég að pottur sé brotinn því að það eru ekki margir söluaðilar að þessum vörutegundum.  Bílavarahlutaverslanir, byggingvöru- og málningarverslanir, svo og ritfangaverslanir ættu með réttu að takarka frjáls aðgengi að þessum vörum.  Það er varla svo erfitt í framkvæmd að hafa spreybrúsa fyrir aftan afgreislukassa eða hafa tússpenna undir eftirliti í þessum búðum.

B Ewing, 23.4.2007 kl. 11:30

3 identicon

Ég var um daginn að versla í Húsasmiðjunni og veitti því athygli að þar var mikið úrval af málningarvörum í úðabrúsum, og þar voru 4 unglingar að skoða og velja sér liti. Bíddu nú við - ég bara spyr; finnst fólki ekki að það sé komið tími til þess að það verði verulega hertar reglur með það hver fær að kaupa málningarúðabrúsa? Það er ljóst að núverandi fyrirkomulag er ekki að ganga upp.   

Bragi (IP-tala skráð) 23.4.2007 kl. 11:34

4 identicon

Ég var um daginn að versla í Húsasmiðjunni og veitti því athygli að þar var mikið úrval af málningarvörum í úðabrúsum, og þar voru 4 unglingar að skoða og velja sér liti. Bíddu nú við - ég bara spyr; finnst fólki ekki að það sé komið tími til þess að það verði verulega hertar reglur með það hver fær að kaupa málningarúðabrúsa? Það er ljóst að núverandi fyrirkomulag er ekki að ganga upp.   

Bragi (IP-tala skráð) 23.4.2007 kl. 11:35

5 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Ef ökumaður ekur á einhver mannvirki og skemmir, ber honum að greiða fyrir þær skemmdir.

Hvað er öðruvísi með svona krot?

Kærar kveðjur

Miðbæjaríhaldið

Bjarni Kjartansson, 23.4.2007 kl. 13:52

6 identicon

Heil og sæl, Þorbjörg Helga og aðrir skrifarar !

Þarf víst engan að undra, sjáum hvernig komið er okkar samfélagi. Þegar ég var að alast upp, á sjöunda áratug síðustu aldar, og fram á unglingsár þess áttunda, þá var yfirleitt ein fyrirvinna, fyrir heimilið; og látið duga. Hvað sem á bjátaði, að þá var móðir mín yfirleitt til staðar, þá ég og systkini mín komum heim, úr skólanum, og það mátti gamla konan eiga, að hún fylgdist vel með, úr eldhúsglugganum, hvort við værum að fremja einhver heimskupör, og tókst yfirleitt, að stöðva okkur, reyndum við nokkra óknytti.

Háhraða þotulið nútímans, virðist ekki mega vera að því; að ala upp börn, hér á Íslandi, ætti bara að sleppa því; margt hvert; enda...... börnin meira og minna gangandi sjálfala um götur og torg. Þarna eiga allir stjórnmálaflokkar sök á, enda virðist græðgisvæðing kapítalismans skipta meira máli, en eðlilegt fjölskyldulíf.

Með beztu kveðjum, úr Árnesþingi /

Óskar Helgi Helgason, frá Gamla Hrauni og Hvítárvöllum   

Með sama áframhaldi  

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 23.4.2007 kl. 23:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband