Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Sunnudagur, 20. maí 2007
Af hverju Ingibjörg frekar en Jón?
Reykjavíkurbréf Morgunblaðsins hefur verið til umræðu í dag. Þar eru settar fram kenningar um að Ingibjörg Sólrún gæti auðveldlega slitið stjórnarsamstarfi eftir tvö ár og búið til minnihlutastjórn. Að mínu mati er þetta ótrúleg fullyrðing um Ingibjörgu umfram aðra flokksformenn. Hefði Jón eitthvað verið traustari til samstarfsins með mjög lítinn meirihluta og jafnvel betri kjötkatla í boði með vinstri stjórn? Ég hefði nú viljað sjá sterkari rökstuðning á Mogganum gegn samstarfi Sjálfstæðisflokks og Samfylkingarinnar.
Hins vegar get ég alveg tekið undir ýmsar vangaveltur um hvernig er allt í einu að vinna með fólki í Samfylkingunni nú þegar allt stefnir í sterka ríkisstjórn þessara tveggja flokka. Ég að minnsta kosti finn að það er pínu skrýtið að heilsa þessu annars ágæta fólki (stjórnmálamenn í öllum flokkum eru að mínu mati hið mætasta fólk) sem samherja. Þetta er án efa skrýtið fyrir alla í báðum flokkum og mun taka smá tíma að venjast. Þetta er spurning um að byggja upp nýja samskiptahætti og traust.
En nú bíð ég eins og aðrir frétta um nýja ríkisstjórn og stjórnarsáttmála. Nú þarf að fara að byrja og láta hendur standa fram úr ermum.
Föstudagur, 18. maí 2007
Stjórnarandstaða Framsóknarflokksins hafin
Það eru spennandi samningaviðræður sem standa yfir milli Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins. Ætli við förum ekki að kalla hina nýju stjórn ,,SS-stjórnina" í gríni? Það er spurning hvort að Framsóknarmenn, sem eru eðli málsins samkvæmt byrjaðir í stjórnarandstöðu af fullum þunga, nái að kalla stjórnina Baugsstjórn út kjörtímabilið. Ég held að ef málefnasamningar verði vel unnir þá geti þessi stjórn náð miklum framförum á ýmsum sviðum og nafnið komi í kjölfarið.
En þeir eru alltaf kraftmiklir Framsóknarmennirnir. Strax byrjaðir að hamra á nýrri stjórn, Geir og Ingibjörgu. Þeir hafa aldrei verið kallaðir latir frammarar! Mér finnst hálfskondið að Framsóknarmenn skuli vera svona bitrir nú. Þó að einhverjar þreifingar hafi átt sér stað á milli XS og XD þá hefðu þeir heldur betur gert það nákvæmlega sama.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fimmtudagur, 17. maí 2007
Sterk staða Sjálfstæðisflokksins
Afar áhugaverð skoðanakönnun Fréttablaðsins sýnir að 35% vilji stjórn Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks. Það kemur mér á óvart hversu mikil breidd er á skoðunum fólks varðandi stjórnarsamstarf. Það kemur minna á óvart hversu mikill munur er á skoðunum landsbyggðar og höfuðborgarsvæðis í þeim efnum.
Það sem mér finnst áhugaverðast kemur ekki fram í fréttinni. Það er að rúmlega 81% kjósenda vilja hafa Sjálfstæðisflokkinn í ríkisstjórn. Að aðeins tæplega 19% kjósenda vilji vinstri stjórn segir ansi mikla sögu.
Mánudagur, 14. maí 2007
Guðjón Arnar orsök?
Ég var að velta fyrir mér eftir fjölmarga spjallþætti gærkvöldins hvernig Frjálslyndi flokkurinn ætlaði að tækla öll þau samstarfsboð sem útilokuðu hann algjörlega. Þá rann upp fyrir mér að orsök þess að stjórnarandstaðan hafi ekki náð betri árangri væri hreinlega Guðjón Arnar sjálfur og mistök hans. Hann lét Nýtt Afl vaða yfir flokkinn, studdi ekki Margréti og ýtir henni út. Í kjölfarið fer hún í framboð fyrir annan flokk og gagnrýnir Frjálslynda flokkinn harkalega.
Íslandshreyfingin verður til og Margrét fær til liðs við sig Ómar Ragnarsson (og það er önnur pæling hvers vegna hann en ekki hún var í forsvari fyrir flokkinn). Íslandshreyfingin tekur töluvert af fylgi af VG og jafnvel fleirum og kjósendum finnst fjölmargir flokkar allt í einu vera að tala um umhverfismál og setja þau á oddinn. Þar með eru umhverfismálin minna rædd. Hundruð atkvæða falla niður dauð og ríkisstjórnin heldur velli að lokum eftir mjög skamma kosningabaráttu.
Líkur eru á ef Guðjón hefði náð að sætta sjónarmið, komið fram með hógværa stefnu í innflytjendamálum og Margrét orðið þingmannsefni að ásýnd flokksins væri önnur. Og jafnvel þannig að flokkurinn hefði stolið atkvæðum af Sjálfstæðisflokknum eins og hann gerði fyrir réttum fjórum árum.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Mánudagur, 14. maí 2007
Hrós á fallegum degi
Það var notaleg og hátíðleg stund í Höfða í dag þegar borgarstjóri afhenti fyrir hönd leikskólaráðs hvatningarverðlaun leikskóla í fyrsta sinn. Allir starfsmenn þeirra 6 leikskóla sem fengu hvatningarverðlaun leikskólaráðs komu og tóku við verðlaunum og nutu tónlistaratriða og veitinga. Borgarstjóri sagði nokkur vel valin orð og afhenti verðlaunahöfunum innrammaða viðurkenningu, blómvönd og fallega leirskál hannaða af Helgu Unnarsdóttur.
Hér er nánari lýsing á verðlaunaverkefnunum:
Hvatningarverðlaun leikskólaráðs 2007 DvergasteinnSamstarf Myndlistaskóla og leikskóla var sett á laggir sem þróunarverkefni til að efla myndmennt og myndskilning og unnið á árunum 1999 2003. Verkefnið hefur hlotið styrki á hverju ári fram til þessa. Börn frá 3ja ára aldri sækja tíma í Myndlistarskóla Reykjavíkur í ákveðinn tíma á hverju ári. Reynt er að tvinna áhuga barnanna á þeirra eigin þekkingarheimi við markvissu fræðslu þar sem leitast er við að skerpa sýn og næmi þeirra fyrir myndsköpun og opna um leið hug þeirra fyrir stærra samhengi hlutanna. Í verkefninu er líka fólgin sú hugsun að óvænt atburðarás í sköpun sé ævinlega tilefni til að leita nýrra leiða og nýrra möguleika.
Ótrúleg eru ævintýrin er verkefni þar sem fengist er við eina þjóðsögu/ævintýri hverju sinni og er efni hennar og úrvinnsla á því tengt flestum námsgreinum þannig að námið verður heildstætt. Unnið er í nokkrar vikur eða mánuði með afmarkað verkefni á öllum deildum leikskólans - en útfærslan er löguð að aldri, áhuga og getu hvers nemendahóps.
Fellaborg
Mannauður í margbreytileika er þróunarverkefni sem fyrst hlaut styrk þróunarsjóðs leikskólaráðs árið 2006. Markmið þess er að vinna með viðhorf barna og fullorðinna til margbreytileika mannlífsins. Með því að leggja áherslu á margbreytileikann hefur sjóndeildarhringur starfsfólks víkkað og þar með er það hæfara og virkara í að takast á við viðfangsefni í daglegu skólastarfi.
Leikskólinn Fellaborg kemur einnig að þróunarverkefninu Tannvernd í samvinnu við Lýðheilsustöð. Þetta frumkvöðlaverkefni hlaut styrkveitingu árið 2007, en það byggir á því að fylgjast með tannheilsu leikskólabarna og fræða foreldra um tannvernd.
HamraborgVísindaverkefni var upphaflega unnið sem þróunarverkefni. Markmiðið var að efla áhuga leikskólabarna á eðli hluta og efna. Kristín Norðdahl og Haukur Arason lektorar við KHÍ þróuðu hugmyndir að verkefninu. Börnin vinna með lögmál náttúrufræðinnar og raunvísinda í gegnum leikinn. Þau skoða fyrirbæri í umhverfi sínu frá nýjum sjónarhóli og þroska skilning sinn á náttúrunni. Orð föður eins drengs í leikskólanum lýsa þessu vel: Drengurinn hefur smitað aðra í fjölskyldunni með áhuga sínum á því hvernig efni, orka, hreyfingar og kraftar tengjast og oft liggur öll fjölskyldan yfir hinum ýmsu vísindaverkefnum.
NóaborgStærðfræði með elstu börnunum í Nóaborg var hrundið af stað sem þróunarverkefni á árunum 1999-2000. Aftur var sótt um styrk til þróunarverkefnis vegna fagvinnu með yngri börnunum og veturinn 2001-2002 var unnið með 2-4 ára börnum að tilraunaverkefni í stærðfræði. Stærðfræðiverkefni eru nú snar þáttur í starfsemi Nóaborgar. Áhersla er lögð á uppgötvunarnám og að börnin læri stærðfræði í gegnum leik. Foreldri orðaði það svo : Börnin fá á frumlegan hátt að kynnast tölum, formum og litum með spilum, þrautum, söngvum og leikjum.
Sólborg
Sameiginlegt nám fatlaðra og ófatlaðra barna. Starfsgrundvöllur leikskólans Sólborgar byggir á hugmyndafræði og kennsluaðferðum sameiginlegs náms fatlaðra og ófatlaðra barna. Þar dvelur fjölbreyttur barnahópur og lærir saman í gegnum leik og daglegt starf. Í leikskólanum vinna ólíkar starfsstéttir saman af fagmennsku að því að mæta þörfum hvers og eins og leita sífellt nýrra leiða til að ná markmiðum leikskólans.
Samvinna og fagstarf. Við upphaf starfsemi leikskólans Sólborgar árið 1994 var strax mótaður starfsgrundvöllur með þá hugsjón að leiðarljósi að þar færi fram nám án aðgreiningar og að skólastarfið byggði á hugmyndafræði heiltækrar skólastefnu. Sólborg var fyrsti leikskólinn til að vinna samkvæmt slíkri stefnu. Ein af leiðunum til að framfylgja henni er samstarf fag- og uppeldisstétta. Sólborg leggur mikinn metnað í samstarf bæði innan skólans og við foreldra og er velgengni barnanna ekki síst því góða samstarfi að þakka.
Steinahlíð
Í túninu heima er þróunarverkefni í náttúru og umhverfisvernd sem unnið var á árunum 2003-2005. Leikskólinn Steinahlíð er einn elsti leikskólinn í Reykjavík og var húsnæðið gefið Barnavinafélaginu Sumargjöf árið 1949 með því skilyrði að þar skyldi alltaf lögð áhersla á trjárækt og matjurtarækt. Það hefur verið gert í gegnum árin og umhverfismál hafa verið vaxandi þáttur í starfi leikskólans. Steinahlíð var fyrsti leikskólinn sem sótti um alþjóðlegu umhverfisviðurkenninguna Grænfánann og fékk hann árið 2003.
Orð foreldra barns í Nóaborg segja allt sem segja þarf:
Krakkarnir læra að breyta rusli og matarafgögnum í mold, skipst er á um að vera moldarbarn, og það fær þann heiður þann daginn að fara út með matarafganga í safntunnuna. Börnunum er kennt að nota minna af sápu og pappír og þau læra að rækta jörðina og nýta þennan stóra garð sem þau hafa í alls kyns verkefni þessu tengdu. 3 ára dóttir mín stoppar mig reglulega við pappírs- og sápunotkun og segir að þetta sé aðeins of mikið - fiskarnir verði bara hræddir Sömu sögu segir faðirinn sem kvartaði undan því að hann fengi ekki frið við raksturinn því hann mætti ekki leyfa vatninu að renna ..
![]() |
Sex leikskólar fá hvatningarverðlaun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 13. maí 2007
Staða einstakra grunnskóla í Reykjavík
Ég vil vekja sérstaka athygli á þeim gögnum sem nú liggja fyrir handa foreldrum grunnskólabarna í Reykjavík um stöðu skólanna. Á heimasíðu menntasviðs er nú hægt að nálgast ólíkar upplýsingar um skólana sem eru afar upplýsandi fyrir foreldra og aðgengilegar. Þarna er hægt að skoða viðhorf foreldra og starfsmanna til skólans, líðan barna og framfarastuðul samræmdra prófa sem mér finnst vera afar vel hannaður mælikvarði hjá Námsmatsstofnun.
Þetta er afar mikilvægt og gagnlegt framtak hjá menntaráði Reykjavíkurborgar því upplýsingar um árangur skóla skilar sér í aukinni umræðu og eftirfylgni foreldra sem að mínu mati verður að fara að auka.
Hér er hægt að skoða til dæmis samantekt um Fossvogsskóla sem synir mínir stunda nám í og ég er afar ánægð með í alla staði.
Sunnudagur, 13. maí 2007
Hvatningarverðlaun leikskóla
Sunnudagur, 13. maí 2007
Að loknum kosningum
Það eru miklar breytingar í vændum þegar svona margir nýir þingmenn koma til starfa. Það er vonandi að á Alþingi verði nýtt fólk til þess að vekja athygli á því mikilvæga starfi sem þar fer fram og almenningur öðlist aukið traust á þingstörfum í kjölfarið.
Sjálfstæðisflokkurinn og Vinstri grænir eru sigurvegarar alþingiskosninga 2007. Geir H. Haarde hefur náð á stuttum tíma að auka fylgi Sjálfstæðisflokksins síðan að ríkisstjórnin lenti í miklum hremmingum vegna forystuvanda Framsóknarflokksins. Hann hefur traust Íslendinga og mun leiða áfram næstu ríkisstjórn. Ég trúi því að fljótlega verði ljóst hvernig ný ríkisstjórn verður skipuð og hugsuð. Mikilvægast er að málefni Sjálfstæðismanna, sem mörg hafa ekki fengið brautargengi enn, liggi til grundvallar í viðræðu. Sjálfstæðisflokkurinn er í góðri samningsstöðu og á að nýta hana til að ná fram breytingum á velferðarkerfinu okkar og landbúnaðarkerfinu.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins er án efa einstakur sigurvegari þessara kosninga. Hún fékk mikinn stuðning í prófkjöri og á listanum er mikið af nýju og öflugu fólki. 42,6% fylgi í kosningunum sýnir að haldið hefur verið vel á spöðunum í Suðvestur kjördæmi þrátt fyrir gríðarlega fólksfjölgun á undanförnum fjórum árum. Að mínu mati hefur menntamálaráðherra styrkt sig verulega og á tilkall til áhrifamikilla embætta í nýrri ríkisstjórn.
Framsóknarflokkurinn tapar stórt og margir hafa greint ástæðurnar í dag í fjölmörgum fréttaþáttum og spjallþáttum. Að mínu mati eru án efa mjög margir þættir að hafa áhrif og atburðarrás sem Framsóknarmenn sjálfir þurfa að greina sjálfir. Hins vegar tel ég að í grunninn þurfi að byggja upp innra starfið og málefnalega vinnu til að styðja við þá valdamiklu menn og konur sem hafa verið að sinna störfum fyrir samfélagið á þingi og í bæjarstjórnum. Afleiðing takmarkaðs baklands í innra starfi eru skammtímalausnir og óstjórn á málaflokkum. Það er óþolandi þegar sagt er að Framsókn sé í sárum vegna samstarfs við Sjálfstæðisflokkinn. Ég get ekki betur séð að Sjálfstæðisflokkurinn hafi í mörgum málum þurft að gefa mjög eftir vegna afstöðu Framsóknarflokksins í hinum ýmsu málum. Til að mynda í landbúnaðarmálum, félagsmálum og heilbrigðismálum. Ekki myndi neinn hlusta á svona afsakanir ef Sjálfstæðisflokkurinn hefði misst fylgi nú.
Rúsínan í pylsuendanum var að Sjálfstæðisflokkurinn skyldi auka svona fjölda kvenna á þingi í þessum kosningum. Nú eru 8 konur á þingi fyrir flokkinn, þrátt fyrir að Sólveig og Sigríður Anna hafi hætt störfum. Sjálfstæðisflokkurinn bætti stöðu sína á meðan að konum fækkar um 3 hjá Samfylkingu.
Að lokum óska ég öllum þessum nýju þingmönnum til hamingju með nýtt starf og þakka öllum þeim Sjálfstæðismönnum óbilandi áhuga og óþrjótandi kraft í þessari baráttu eins og öðrum.
![]() |
24 nýir þingmenn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 11. maí 2007
Tilmæli áhrifamanna
Margir eru að ræða auglýsingar Jóhannesar í blöðunum í morgun. Skal engan undra, því það er ekki algengt að nokkur lýsi yfir hvað þeir kjósi í fjölmiðlum og borgi fyrir það í þokkabót. Það er líka áhugavert að stórkaupmaðurinn telji sig svo áhrifamikinn að fólk fylgi hans tilmælum. Ég held að Jóhannes ætti að huga að framboði sjálfur og hafa áhrif á gang mála. Stjórnmál eru þannig, hver sem er getur boðið fram krafta sína og breytt samfélaginu í samstarfi við annað gott fólk.
Það sem ég er hins vegar ósáttust við er þegar að peningar einstaklinga eru notaðir til að hafa áhrif á fólk í kosningum á svona ómálefnalegan hátt. Þetta eru sömu ástæður og ég hef fyrir að vera á móti því að íbúakosningar verði almennar. Það eru einmitt menn eins og Jóhannes sem geta haft veruleg áhrif á lítil og stór mál sem kosið er um. Það er mun eðlilegra að kjörnir fulltrúar ráði ferð í þessu fjögur ár sem þeir eru kjörnir og síðan er kosið um þeirra verk.
Að lokum skal þess getið að ég treysti Birni Bjarnasyni til allra góðra verka og tel hann vera einn af okkar allra öflugustu stjórnmálamönnum. Ég ætla að nýta þetta litla blog mitt til að hvetja fólk til að strika engan út af listum, nema þeir hafi gildar og rökstuddar skoðanir sem hafa verið vel ígrundaðar.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Föstudagur, 11. maí 2007
Frábær Risessa
Ég mæli með að allir á höfuðborgarsvæðinu kíki á Risessuna í dag eða á morgun. Þetta er alveg frábært götuleikhús sem kemur manni í mjög gott skap. Borgarstjórnarmeirihlutinn elti hana í morgun, frá Hljómskálagarðinum að höfn, sá hana pissa hjá Dómkirkjunni, fara á hlaupahjól og setja á sig leðurhúfu og fá sér íspinna. Mér leið eins og sönnum Evrópubúa í dag, Vestur-Evrópubúa!
Götuleikhúsið kemur frá Frakklandi og er eitt af lokaatriðum pourquoipas.is sem er frönsk menningarveisla á vegum Menntamálaráðuneytisins. Þessi hátíð kemur í kjölfar samkomulags og ákvörðunar franskra og íslenskra stjórnvalda frá árinu 2001. Íslenska menningarkynningin fór fram í október 2004 í Frakklandi og vakti verðskuldaða athygli. Nú njótum við listhneigð Frakka.
![]() |
Þúsundir fylgdust með risabrúðu á gönguför |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spurt er
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur
- Desember 2009
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
- Mars 2006
- Febrúar 2006
- Janúar 2006
Bloggvinir
-
kjartanvido
-
olofnordal
-
fridjon
-
andres
-
astamoller
-
gaflari
-
ragnhildur
-
birkire
-
doggpals
-
stebbifr
-
jarnskvisan
-
herdis
-
ea
-
doj
-
godsamskipti
-
arndisthor
-
audbergur
-
audureva
-
arniarna
-
aslaugfridriks
-
dullur
-
bryn-dis
-
jaxlinn
-
erla
-
uthlid
-
grettir
-
gudfinna
-
hildurhelgas
-
kolgrimur
-
hlodver
-
oxford
-
hvitiriddarinn
-
golli
-
ingo
-
ibb
-
nonniblogg
-
jorunnfrimannsdottir
-
skruddan
-
maggaelin
-
olafur23
-
otti
-
sigurdurkari
-
sjalfstaedi
-
saethorhelgi
-
valgerdurhalldorsdottir
-
vefritid
-
vibba
-
villithor
-
thorsteinn
-
hnefill