Staða einstakra grunnskóla í Reykjavík

Ég vil vekja sérstaka athygli á þeim gögnum sem nú liggja fyrir handa foreldrum grunnskólabarna í Reykjavík um stöðu skólanna.   Á heimasíðu menntasviðs er nú hægt að nálgast ólíkar upplýsingar um skólana sem eru afar upplýsandi fyrir foreldra og aðgengilegar.   Þarna er hægt að skoða viðhorf foreldra og starfsmanna til skólans, líðan barna og framfarastuðul samræmdra prófa sem mér finnst vera afar vel hannaður mælikvarði hjá Námsmatsstofnun.

Þetta er afar mikilvægt og gagnlegt framtak hjá menntaráði Reykjavíkurborgar því upplýsingar um árangur skóla skilar sér í aukinni umræðu og eftirfylgni foreldra sem að mínu mati verður að fara að auka.

Hér er  hægt að skoða til dæmis samantekt um Fossvogsskóla sem synir mínir stunda nám í og ég er afar ánægð með í alla staði. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæl Þorbjörg,

Takk fyrir að benda á þetta.  Því meiri upplýsingar sem við foreldrar fáum því meiri möguleika eigum við á að gera skólana okkar enn betri.

kv, Sigurður Magnús

Sigurður Magnús (IP-tala skráð) 14.5.2007 kl. 08:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband