Þriðjudagur, 23. október 2007
Siglfirðingar framhald
Ég fékk tölvupóst í gegnum föður minn frá áhugamanni um ættfræði Siglfirðinga. Það hefur einhver tekið að sér að skoða borgarfulltrúana líka, kannski vegna færslu minnar um daginn. Birti tölvupóstinn hér að neðan en enn vantar upplýsingar um Sóleyju Tómasdóttur.
Pabbi er að vísu fæddur í Reykjavík en flutti nokkurra vikna norður. Afi er ættaður úr Fljótunum en amma var frá Vestmannaeyjum og hitti afa fyrir norðan.
Dagur B. Eggertsson, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar og borgarstjóri, er sonur Eggerts Gunnarssonar dýralæknis og Bergþóru Jónsdóttur lífefnafræðings. Bergþóra er fædd á Siglufirði, dóttir Jóns Hjaltalíns Gunnlaugssonar, sem var heimilislæknir þar frá 1947 til 1955.Jórunn Frímannsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, er dóttir Þórunnar Jensen og Frímanns Gústafssonar trésmiðs, sem er fæddur og uppalinn á Siglufirði, sonur Gústafs Guðnasonar olíubifreiðastjóra og Jórunnar Frímannsdóttur sem býr á Siglufirði.
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, er dóttir Vigfúsar Árnasonar endurskoðanda, sem er fæddur og uppalinn á Siglufirði, sonur Helgu Hjálmarsdóttur og Árna Friðjónssonar síldarsaltanda (bróður Vigfúsar Friðjónssonar). Móðir Þorbjargar Helgu er Ólöf G. Björnsdóttir hjúkrunarfræðingur. Afi hennar var Sveinbjörn Jónsson byggingameistari, framkvæmdastjóri Ofnasmiðjunnar, en hann var oft á Siglufirði á fyrri hluta tuttugustu aldar.
Þá má geta þess að Svandís Svavarsdóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna, á mikið af skyldfólki á Siglufirði. Afi hennar í móðurætt er Benedikt Kristinn Franklínsson, bróðir Guðbjargar, Guðborgar, Margrétar og Nönnu Franklínsdætra. Afabróðir Kjartans Magnússonar, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, var Ólafur Ragnars síldarsaltandi á Siglufirði.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:04 | Facebook
Spurt er
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Desember 2009
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
- Mars 2006
- Febrúar 2006
- Janúar 2006
Bloggvinir
- kjartanvido
- olofnordal
- fridjon
- andres
- astamoller
- gaflari
- ragnhildur
- birkire
- doggpals
- stebbifr
- jarnskvisan
- herdis
- ea
- doj
- godsamskipti
- arndisthor
- audbergur
- audureva
- arniarna
- aslaugfridriks
- dullur
- bryn-dis
- jaxlinn
- erla
- uthlid
- grettir
- gudfinna
- hildurhelgas
- kolgrimur
- hlodver
- oxford
- hvitiriddarinn
- golli
- ingo
- ibb
- nonniblogg
- jorunnfrimannsdottir
- skruddan
- maggaelin
- olafur23
- otti
- sigurdurkari
- sjalfstaedi
- saethorhelgi
- valgerdurhalldorsdottir
- vefritid
- vibba
- villithor
- thorsteinn
- hnefill
Athugasemdir
Fannst alltaf skrítið í den Þorbjörg að móðursystir mín,þ.e. föðuramma þín ætti heima á Siglufirði en var samt Vestmannaeyingur.Svo þegar maður hitti hana ´þá talaði hún líka með þessum sterka norðlenska hreim.Kveðja til ykkar úr Eyjum.
RagnaB (IP-tala skráð) 23.10.2007 kl. 15:09
Þetta er að verða svolítið eins og þegar Jón Gnarr og Davíð Þór voru með pistlana um loftskeytamennina sem voru að þeirra sögn helsta ógn mannkyns og staðráðnir í að taka yfir heiminn.
Sigurður Viktor Úlfarsson, 23.10.2007 kl. 15:34
Þorbjörg þú hefðir átt að fá skáldið í Hrísey til að lesa þessa samninga en ekki láta sjónvarps álfinn spila með þig kv Adolf
ADOLF (IP-tala skráð) 23.10.2007 kl. 20:50
ja hérna - þetta er nú bara skemmtilegt hvað Ísland er alltaf mikið frímerki - mér finnst eyjan okkar alltaf minnka meir og meir með árunum - eins og barninu fannst landið stórt og mikið séð frá sveitinni minni á vestfjarðakjálkanum í uppvextinum.
Ása (IP-tala skráð) 25.10.2007 kl. 23:18
Ánægjuleg tengsl við Siglufjörð
Ég, pabbi Sóleyjar fæddist og ólst upp til 10 ára aldurs á Siglufirði. Bjó qð Grundargötu 19 í húsi sem nefnt var Visnes. Foreldrar mínir Sigurpála og Jón og bræður föður míns voru alltaf kenndir við Visnes, Visnesbræður. Þeir voru m.a. Jón í Visnesi Sigurðsson, Bjarni Sigurðsson, faðir Kristjáns Bjarnasonar, skipstjóra á Siglufirði, og Tómas Sigurðsson. Heimurinn er lítill, því ég held að báðir foreldrar mínir hafi unnið á síldarplani Vigfúsar og Árna Friðjóns og þekktust vel. Ég er jafnvel ekki frá því að ég hafi stundum verið á skíðum með föður þínum Þorbjörg Helga. Þessi tengsl styrkja vonandi samstarf ykkar Sóleyjar, hún hefur allt gott til brunns að bera eins og flestir afkomendur Siglfirðinga.
Tómas Jónsson, 26.10.2007 kl. 11:58
Þar hefurðu það Tobba mín! Pabbi veit sínu viti...
Sóley Tómasdóttir (IP-tala skráð) 26.10.2007 kl. 14:03
Já við Siglfirðingarnir .
Herdís Sigurjónsdóttir, 27.10.2007 kl. 13:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.