Forgangsröðun fyrir börn (Frbl. 10.01.08)

Þessa dagana er glænýr meirihluti í borgarstjórn að rífast. Meirihlutinn er að rífast um gömul hús sem sannarlega eiga sér mikla sögu og verðmæti. Þessi sami ósamstæði meirihluti tók hins vegar ákvörðun um að húsin skyldu hverfa fyrir nokkrum árum þegar R-listinn var við völd. En nú telja þessir sömu aðilar eðlilegt að skipta um skoðun, skoðun sem gæti kostað útsvarsgreiðendur 600 milljónir eða jafnvel meira.

Foreldrar skrifa mér reiðir þessa dagana vegna umfjöllunar um húsafriðun og telja forgangsröðun borgarfulltrúa ótrúlega. Nýr meirihluti sem ekki enn hefur sett fram málefnasamning hefur þó sagst ætla að setja þjónustu við börn í öndvegi. Þrátt fyrir aðgerðir fyrri meirihluta og núverandi meirihluta fyrir áramót vantar hátt í tvöhundruð starfsmenn, eða á helming leikskóla í Reykjavík. Enn vantar umsjónarkennara í grunnskóla borgarinnar. Enn vantar að manna frístundaheimili.   Stóru orðin voru ekki spöruð hjá borgarfulltrúum meirihlutans þegar þeir voru í minnihluta.   Þrúgandi þögn um vandann er hins vegar áberandi núna þegar sömu borgarfulltrúarnir eru komnir í meirihluta.

Ekki skortir umfjöllunina um Laugaveg 4-6 undanfarna daga og ótrúlegasta fólk er farið að tjá sig og sýna málinu skilning og stuðning.  Foreldrar eiga erfiðara með að tjá sig enda hafa þeir áhyggjur af því að reiði þeirra um ástandið bitni á þeirra eigin börnum.  Foreldrar sem eru alla daga að koma börnum sínum fyrir hjá vinum og vandamönnum, taka þau í vinnu eða fresta því að fara að vinna eftir fæðingarorlof hljóta að spyrja sig hvaða forgangsröðun borgin hafi að leiðarljósi.  Foreldrar eiga sér ekki sterka talsmenn.  Því spyr ég borgarstjórann í Reykjavík fyrir hönd foreldra hver sé forgangsröðunin hjá nýjum meirihluta í málefnum barna? 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Góðan daginn allir. ég vildi bara láta ykkur vita að Jafnréttindafélag Íslands verður stofnað í næstu viku.

Fyrsti fundurinn verður miðvikudagskvöldið 23. Janúar kl 20:00.

Nánari upplýsingar eru á síðunni minni.

Ólafur Hannesson (IP-tala skráð) 14.1.2008 kl. 18:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband