Nemendur með lestrarerfiðleika

Ég hef alltaf sagt að eins og skólakerfið okkar er orðið gott þá eru nokkrir hópar með sértæka erfiðleika og sértækar gáfur oft útundan í kerfinu.   Þeirra á meðal eru nemendur með lestrarerfiðleika.   Á síðustu 18 mánuðum hafa fulltrúar menntamálaráðherra skilað vinnu sem afmarkar hvaða verkefni þurfi að vinna til að bæta umhverfið.   Menntamálaráðherra opnaði í kjölfar þessarar vinnu tvo vefi til stuðnings nemendum með lestrarörðugleika og foreldrum þeirra. 

Annar þeirra, Lesvefurinn, er vefur sem veitir ólíkum hagsmunaaðilum upplýsingar um lestur og lestrarerfiðleika.  Á Lesvefnum verður í framtíðinni sett inn mikið efni til upplýsinga og einnig geta foreldrar og kennarar sett þarna inn fyrirspurnir.

Hinn vefurinn, Lesvélin, er vefur sem auðveldar aðgengi fólks með lestrarerfiðleika að texta á netinu. Um er að ræða upplestrarþjónustu lesvélarinnar Ragga.  Aðgangur að lesvélinni er öllum opinn.

Ég er viss um að þessir tveir vefir komi strax til góðra nota og ég vona að þetta verði kynnt vel.  Þetta er líka vonandi fyrsta skrefið af mörgum til að bæta þjónustu við börn með leserfiðleika í skólakerfinu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sumir hópar OF útundan í kerfinu? Það er semsagt í lagi að börn sem eiga við lestrarerfiðleika að stríða, börn með ADHD og börn með þroskafrávik séu útundan...bara ekki OF útundan, eða hvað??

guðrún (IP-tala skráð) 28.11.2007 kl. 10:14

2 Smámynd: Þorkell Sigurjónsson

Já, þorbjörg Helga það má alltaf gera betur og sérstaklega í sambandi við lesblindu. Þekki þann vanda nokkuð. Sonur minn átti við þennan vanda að stríða, en heppilegt að það uppgötvaðist snemma,  samt átti hann geysi erfitt á fyrstu árum skólagöngunnar . Ég varð að lesa með drengnum mínum fram að fermingu allar hans námsgreinar. En þetta hafðist allt saman og í haust útskrifaðist hann frá Bifröst úr B.A. í félagsvísundum og hagfræði.

Þorkell Sigurjónsson, 28.11.2007 kl. 21:32

3 Smámynd: Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir

Sæl Guðrún,  þetta eru að mínu mati aðeins of sterk viðbrögð enda átti að standa þarna oft en ekki of.  Ég hef leiðrétt þetta nú.

Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, 29.11.2007 kl. 01:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband