Foreldrar ósparir á lofiđ

Ţetta eru frábćrar niđurstöđur og ég vona ađ leikskólakennarar og starfsmenn taki ţetta til sín sem miklu hrósi fyrir faglegt og gott starf í skólunum.

Ég er sérstaklega ánćgđ ađ sjá ánćgju foreldra sem eiga börn sem ţurfa á sérţjónustu ađ halda inni í skólunum.   Ţađ er mikilvćgt ađ halda ţví til haga ađ hugmyndafrćđi leikskóla borgarinnar í sérkennslumálum er snemmtćk íhlutun og um leiđ og upp kemur grunur um ađ barn ţurfi sértćka ţjónustu fer ferli í gang hjá starfsmönnum skóla og sérfrćđingum á ţjónustumiđstöđvum borgarinnar.   Ţannig fćr barn ţjónustu eins fljótt og auđiđ er.  

Ţađ er mikilvćgt ađ ţetta sé skýrt ţar sem ađ undanfarin misseri hafa veriđ uppi hávćrar raddir um ađ biđlistar séu langir á BUGL og Greiningarstöđ Ríkisins.  Biđlistarnir eru vissulega of langir og efla ţarf ţessar stofnanir til muna.  En halda ţarf til haga ađ í Reykjavík er strax gripiđ inn í hjá hverju og einu barni og ţađ fćr ţjónustu hjá borginni eins og kostur er á.

Almennt ţykir mér vera kominn tími á ađ endurskođa sérkennslumál ţjóđarinnar í heild og vćnti mikils af nýrri ríkisstjórn í ţeim efnum.   Ţegar skólamálin voru flutt frá ríki til sveitarfélaga fylgdi lítiđ af ferlum og ekkert fé og sum sveitarfélög hafa enga burđi til ađ mćta ţörfum allra barna.   Ţetta ţarf ađ skođa vel.   Í ferđ okkar til Danmerkur í maí var áhugavert ađ sjá ađ fjölskyldumálaráđuneytiđ ţar hafđi sett fram stefnu í ţjónustu viđ fyrirbura.  Ţar er snemmtćk íhlutun lögđ til grundvallar og unniđ í fyrirbyggjandi ađgerđum ţar sem hćrri líkur eru á ađ fyrirburar ţurfi einhvern stuđning í framtíđinni.   Ţessar fyrirbyggjandi ađgerđir skila sér í heilbrigđari einstaklingi, miklu betri upplýsingagjöf til foreldra og forráđamanna og síđan lćgri sérkennslukostnađi í gegnum allt skólakerfiđ.


mbl.is Foreldrar ánćgđir međ ţjónustu leikskólanna í Reykjavík
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband