Málefnin ráða för (grein 22.01.08)

Reykvíkingar kjósa borgarstjórn á fjögurra ára fresti.   Kjósendur móta skoðun sína út frá mönnum, hugmyndafræðilegri stefnu flokka og einstökum málefnum.  Í borgarstjórnarkosningum árið 2006 var ljóst að mikilvægustu baráttumálin í Reykjavík væru samgöngumál, umhverfismál og málefni eldri borgara.  Flokkarnir sem buðu fram, alls 5 talsins, höfðu allir ákveðin einkenni og stóðu fyrir ákveðna hugmyndafræði, mismikla þó.  Reykvíkingar kusu og höfnuðu þáverandi meirihlutasamstarfi Vinstri grænna, Samfylkingar og Framsóknar.  Skilaboð kjósenda voru að annað mynstur stjórnarsamstarfs tæki völdin í Reykjavíkurborg en R-lista samstarfið sem hafði ráðið ríkjum í 12 ár og lent í miklum skakkaföllum eftir fráhvarf Ingibjargar Sólrúnar.Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn hófu samstarf eftir kosningar á grundvelli málefna.  Mörg mjög góð verk voru framkvæmd strax eða komin í farveg.   Frístundakortið, lóðir á kostnaðarverði, lækkun leikskólagjalda, frítt í strætó, græn skref í Reykjavík og sveigjanlegra skólastarf voru meðal þeirra verkefna sem fóru í framkvæmd.   Gagnrýnin var helst sú frá flokksfólki að búið væri að uppfylla öll loforðin of hratt -  svo mikill var hugurinn í borgarfulltrúum nýs meirihluta.  En þá kom byltan. Bylta sem varð vegna ágreinings innan meirihlutans um hvernig staðið var að málum í svo kölluðu REI máli“. Meirihlutinn féll.Björn Ingi valdi að yfirgefa Sjáflstæðisflokkinn þrátt fyrir afar farsælt samstarf og samveru og tók þátt í hreinu valdaráni með svikum sínum.  REI-listinn, meirihluti fjögurra flokka, varð til um völd í borginni.  Enginn málefnasamningur var gerður og engin sýn kynnt borgarbúum.   Meirihlutinn var búinn til í kringum alls kyns klúður í kringum Orkuveitu Reykjavíkur en í 100 daga gerðist síðan ekkert í málefnum REI.  Strax var ljóst að mikil mistök voru að gera ekki málefnasamning.  ,,Pólitík hins daglega lífs“ sagði Dagur B. Eggertsson borgarstjóri um nýjan meirihluta.   Lausnir í ágreiningsmálum voru að biðja menntamálaráðherra að skera sig úr snörunni í skipulagsmálum.  Borgarbúar höfðu aldrei neina trú á að þessi fjögurra flokka meirihluti án málefnaskrár ætti sér mikla framtíð.   Greinilegt var að Ólafur F. Magnússon var ósáttur við málefnaleysi REI listans enda mjög trúr sínum hugmyndafræðilegum sjónarmiðum.  Fulltrúar Samfylkingarinnar, Vinstri grænna og Framsóknarflokksins segja nú að samstarfið hafi verið afar gott þrátt fyrir að Ólafur hafi á mörgum tímapunktum látið í ljós óánægju, bæði opinberlega og við aðra borgarfulltrúa. Samstarfsmenn Ólafs vanmátu á sínum 100 dögum að ólíkt þeim gat Ólafur ekki sætt sig við valdabandalag í stað málefnabandalags. Nýr meirihluti varð til á mánudag.   Hann vinnur út frá stefnu tveggja flokka sem eiga í raun meira sameiginlegt hugmyndafræðilega en þeir flokkar sem myndað hafa meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur síðustu 14 árin.  Frjálslyndi flokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn munu ­afstýra því að næstu mánuðir og ár verði það tímabil aðgerðarleysis sem einkenndu störf meirihlutans sem nú er fallinn. 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband